Vandaðar lettneskar þýðingar - Snör vinnubrögð og hagstæð verð
Hagstæð verð
Við þýðum frá 35 kr. á orð og prófarkalesum frá 10 kr. á orð. Við veitum einnig afslátt ef textinn inniheldur endurtekningar.
Gæði
Við vinnum eingöngu með reyndum þýðendum sem þýða yfir á sitt móðurmál. Þannig tryggjum við gæðaþýðingar.
Hröð þjónusta
Við getum oft klárað þýðinguna samdægurs. Það veltur þó á textalengd.
Fáðu lettneska þýðingu í fjórum einföldum skrefum
Reiknaðu út þitt verð fyrir þessa þjónustu. Við veitum þó afslátt ef textinn inniheldur endurtekningar.
Reiknaðu út þitt verð fyrir þessa þjónustu. Við veitum þó afslátt ef textinn inniheldur endurtekningar.
Fáðu hágæða lettneskar þýðingar á hagstæðasta verðinu á markaðnum
Þýðendur Diction eru til taks og reiðubúnir að aðstoða með faglegar lettneskar þýðingar. Diction hefur gríðarlega stórt tengslanet, mikla þekkingu og vinnur eingöngu með færum og reynslumiklum lettneskum móðurmálsþýðendum. Við getum því aðstoðað þig með hágæða lettneskar þýðingar á hagstæðasta verðinu á markaðnum.
Þýðingar á lettneskum texta
Við vitum hversu mikilvægt það er að velja réttu lettnesku þýðendurna innan mismunandi faggreina og því eru þýðingar á lettneskum texta einn af okkar styrkleikum. Hvort sem þú þarft að láta þýða lögfræðilega texta, samfélagslega eða tæknilega texta af einhverju tagi, þá munu þýðendur okkar tryggja að boðskapur þinn komist skýrt til skila til lettneska móttakandans. Faglegar hágæða þýðingar er það sem við stöndum fyrir.
Við erum með á skrá hjá okkur fjölda þýðenda innan tungumálsins og getum því alltaf boðið viðskiptavinum okkar þá lausn, er leysir þeirra vanda og uppfyllir þeirra kröfur. Með öðrum orðum það er ekkert lettneskt þýðingaverkefni sem við getum ekki leyst.
Móðurmálsþýðendur tryggja þér hágæða þýðingar
Diction hefur sett sér það markmið að geta alltaf skilað þýðingum í hæsta mögulega gæðaflokki og það eru því eingöngu færir móðurmálsþýðendur sem geta komist á skrá hjá okkur. Umsögn viðskiptavina og mat okkar á því hve ánægður viðskiptavinurinn er, er einnig mikilvægur hluti af því að geta viðhaldið því markmiði.
Hröð þjónusta á lettneskum þýðingum
Vegna þess hve marga þýðendur Diction hefur á sínum snærum getum við alltaf boðið upp á hraða þjónustu á þýðingum og prófarkalestri. Ef þú eða þitt fyrirtæki þurfið að fá þýtt mikið magn texta yfir lengra tímabil, þá mun Diction sjá til þess að úthluta þér alltaf sama þýðandanum. Það gerum við til að tryggja samræmi í textunum og til að geta veitt hraða þjónustu á þýðingum.
Þýðingar úr og yfir á lettnesku
Lettland er eitt af aðildarríkjum Evrópusambandsins með ört stækkandi millistétt og atvinnulíf í hröðum vexti. Sífellt fleiri lettnesk og íslensk fyrirtæki hafa hafið samstarf og má þar sérstaklega nefna fyrirtæki sem vinna við vöruframleiðslu.
Teymið okkar
Við erum til þjónustu reiðubúin í síma 644 0800 eða á netfanginu [email protected]. Opið virka daga frá 08:00 til 17:00.