Markmið Diction
Með því að notast við nýjustu tækni við þýðingar og fagkunnáttu starfsmanna ætlar Diction að vera fremst í flokki meðal þýðingastofa á Norðurlöndunum.
Vandaður texti eykur vöxt
Þýðingar tengja fólk, þvert á milli landa og mismunandi menningarheima. Vandaðar textaþýðingar eru því grundvöllur þess að fyrirtæki vaxi og dafni. Diction getur aðstoðað fyrirtæki þitt við að ná árangri á nýjum mörkuðum.
Það eru engar tilviljanir
Diction leggur metnað í að veita persónulega þjónustu og við leiðbeinum þér varðandi bestu lausnina hverju sinni. Við erum sérfræðingar í notkun á nútíma tungumálatækni og aðstoðum þig með að finna út hvaða möguleikar eru í boði þegar kemur að þýðingum, prófarkalestri og textagerð.
Hátækni – þýðir lægra verð
Í þýðingageiranum er mjög mikilvægt að fylgjast með þeirri hröðu stafrænu og tæknilegu þróun sem á sér stað og vill Diction vera leiðandi í þeim málum. Við nýtum okkur nýjustu tækni í tungumálum og getum því ekki eingöngu boðið upp á hágæða þýðingar, heldur einnig samkeppnishæf verð og stuttan afgreiðslutíma.