Vandaðar pólskar þýðingar - Snör vinnubrögð og hagstæð verð
Hagstæð verð
Við þýðum frá 35 kr. á orð og prófarkalesum frá 10 kr. á orð. Við veitum einnig afslátt ef textinn inniheldur endurtekningar.
Gæði
Við vinnum eingöngu með reyndum þýðendum sem þýða yfir á sitt móðurmál. Þannig tryggjum við gæðaþýðingar.
Hröð þjónusta
Við getum oft klárað þýðinguna samdægurs. Það veltur þó á textalengd.
Fáðu vandaðar, hágæða pólskar þýðingar
Diction býður upp á pólskar þýðingar og prófarkalestur til einstaklinga og fyrirtækja. Við erum með sérfræðinga í pólsku sem hafa fjölbreytta reynslu úr atvinnulífinu og eru reiðubúnir að þýða og prófarkalesa pólska texta. Auk þess að leggja mikla áherslu á gæði þá er erum við hjá Diction staðráðin í því að geta alltaf boðið bestu verðin á markaðnum, sem þýðir að við reynum alltaf að halda kostnaði niðri fyrir viðskiptavini okkar.
Pólskar þýðingar
Við höfum sérhæft okkur í þýðingum úr og yfir á pólsku og getum því aðstoðað þig með alla texta óháð því hvers eðlis hann er. Við erum með sérhæfða þýðendur sem eru tilbúnir að þýða úr og á pólsku. Þú getur því verið öruggur með að við afhendum þér villulausan texta með gott textaflæði.
Þýðendur með móðurmálskunnáttu
Til að geta tryggt hæstu mögulegu gæði í okkar þýðingum þá höfum við eingöngu ráðið til okkar pólska þýðendur með pólsku að móðurmáli. Pólsku þýðendurnir okkar hafa því bestu forsendurnar til að gera þýðingarnar réttar. Auk þess að hafa pólsku að móðurmáli eru allir okkar þýðendur með akademíska menntun, í flestum tilfellum mastersgráðu eða tilsvarandi menntun. Við erum með stóran hóp þýðenda sérhæfða á sínum sviðum. Þurfir þú að fá reglulega pólskar þýðingar í framtíðinni þá getum við einnig tryggt að þú fáir alltaf sama þýðandann til að tryggja samfelldni.
Prófarkalestur á pólsku
Ert þú með pólskan texta sem þarf að prófarkalesa? Prófarkalestur á pólskum textum er þjónusta sem við bjóðum öllum okkar viðskiptavinum. Þegar við prófarkalesum textana þá leiðréttum við allar mögulegar villur og komum með tillögur að breytingum sem einfalda þér að koma þínum boðskap skýrt til skila. Eftir prófarkalesturinn færð þú tvær útgáfur af textanum. Eina útgáfu þar sem leiðréttingarnar eru rauðlitaðar, til að þú sjáir hvaða breytingar voru gerðar og svo hins vegar aðra útgáfu sem er tilbúin til notkunar með leiðréttingunum.
Forgangsþjónusta? Hér getur þú fengið flýtimeðferð
Er brjálað að gera og þig vantar þýðingu núna? Þá er Diction rétti aðilinn til að aðstoða þig. Við erum þekkt fyrir að vera sveigjanlegasta þýðingastofan á markaðnum. Um leið og búið er að ganga frá samningi, okkar á milli, hefjum við samstundis störf og getum afhent samdægurs eða daginn eftir í einhverjum tilvikum, en það fer eftir textamagni. Þegar um flýtimeðferð er að ræða þá leggst ofan á 25% auka gjald, en það er metið í hverju tilviki. Ef þú vilt fá óskuldbindandi tilboð þá sendir þú okkur bara í gegnum formið á síðunni.
Pólski markaðurinn
Á heimsvísu er pólska töluð af meira en 65 milljón manns. Pólland hefur í áraraðir verið í miklum fjárhagslegum vexti. Ný velmenntuð millistétt hefur orðið til í landinu og stækkar ört. Þrátt fyrir að enska sé kennd í skólunum er ennþá stór hluti Pólverja sem talar eingöngu pólsku, sérstaklega eldri kynslóðin. Það getur því haft afgerandi áhrif fyrir erlend fyrirtæki að þýða sitt efni yfir á rétta pólsku til að ná til sem flestra.
Teymið okkar
Við erum til þjónustu reiðubúin í síma 644 0800 eða á netfanginu [email protected]. Opið virka daga frá 08:00 til 17:00.