Vandaðar spænskar þýðingar - Snör vinnubrögð og hagstæð verð
Hagstæð verð
Við þýðum frá 35 kr. á orð og prófarkalesum frá 10 kr. á orð. Við veitum einnig afslátt ef textinn inniheldur endurtekningar.
Gæði
Við vinnum eingöngu með reyndum þýðendum sem þýða yfir á sitt móðurmál. Þannig tryggjum við gæðaþýðingar.
Hröð þjónusta
Við getum oft klárað þýðinguna samdægurs. Það veltur þó á textalengd.
Allar tegundir þýðinga á spænsku
Diction býður upp á allar tegundir þýðinga og prófarkalesturs á spænsku, fyrir bæði einstaklinga og fyrirtæki. Við höfum sérfræðinga í þýðingum og prófarkalestri sem taka að sér að þýða eða prófarkalesa allar tegundir texta. Þar að auki leggjum við metnað okkar í það að hafa samkeppnishæf verð og við getum því með vissu fullyrt það að við erum alltaf með bestu verðin á markaðnum.
Spænskar þýðingar
Við getum alltaf aðstoðað viðskiptavini okkar við þýðingar úr og yfir á spænsku. Það eru í kringum 360 milljónir manns um allan heim sem hafa spænsku að móðurmáli og því höfum við tryggt að við höfum alltaf þýðanda sem er til taks til að þýða spænska texta. Spænska getur verið erfitt tungumál að læra þar sem einstakir bókstafir geta breytt þýðingu orða, m.a. þegar orð eru fallbeygð. Þar af leiðandi er mikilvægt þegar maður ætlar að eiga samskipti á spænsku að það séu engar stafsetningarvillur. Við tökum að okkur þýðingar á öllum tegundum texta á spænsku. Sendu okkur textann þinn og þú færð óskuldbindandi tilboð í verkefnið.
Þýðendur með móðurmálskunnáttu
Við viljum alltaf tryggja að verðið endurspegli gæðin og þess vegna notum við alltaf þýðendur með móðurmálskunnáttu. Það þýðir með öðrum orðum að þú færð alltaf þýðanda sem er fæddur og uppalinn á Spáni. Við gerum einnig kröfur til viss menntunarstigs hjá okkar þýðendum, en þeir þurfa allir að hafa lokið háskólanámi. Við sjáum til þess að þú getir fengið sama þýðandann, hafir þú eða fyrirtæki þitt, þörf á að þýða fleiri texta á spænsku. Það tryggir sömu málfars- og orðanotkun.
Prófarkalestur á spænsku
Diction býður upp á faglegan prófarkalestur á spænskum textum. Ef þig vantar yfirlestur á spænskum texta þá geturðu sent okkur textann í gegnum heimasíðuna og við sendum þér tilboð innan skamms tíma. Prófarkalestur hjá Diction, felur í sér að við förum ítarlega yfir spænska stafsetningu, málfræði, notkun greinarmerkja og setningargerð. Ef þú hefur einhverjar frekari óskir í tengslum við yfirlesturinn, þá hefur þú bara samband.
Fljót afgreiðsla
Við munum alltaf leggja allt að mörkum til að vera þinn fasti og trausti samstarfsaðili þegar þig vantar þýðingar sem liggur á. Auk þess færðu alltaf villulausan texta sem stendur 100% undir þínum væntingum. Þú hefur alltaf aðgengi að okkur og við afhendum alltaf textann til þín innan fyrir fram ákveðins tímafrests. Sveigjanleiki er okkar styrkur og við höfum marga færa þýðendur á okkar snærum. Þú getur þar með alltaf treyst því að við getum aðstoðað þig með þýðingar úr og á spænsku.
Spænska sem tungumál
Það eru í kringum 360 milljónir manns um allan heim sem tala spænsku og þess vegna erum við alltaf með þýðanda til taks, reiðubúinn að þýða spænska texta. Að læra spænsku getur oft reynst erfitt þar sem einn rangur bókstafur getur breytt þýðingu orðsins, m.a. þegar maður beygir orð úr eintölu í fleirtölu eða karlkynsorð yfir í kvenkynsorð. Það er því gríðarlega mikilvægt þegar maður á í samskiptum á spænsku að hver og einn bókstafur sé réttur inni í orðinu. Það kemur sér sérstaklega vel í tengslum við atvinnutækifæri, í fræðilegu samhengi og almennt þegar þú þarft að koma boðskap til skila á faglegan hátt.
Teymið okkar
Við erum til þjónustu reiðubúin í síma 644 0800 eða á netfanginu [email protected]. Opið virka daga frá 08:00 til 17:00.