Vandaðar finnskar þýðingar - Snör vinnubrögð og hagstæð verð
Hagstæð verð
Við þýðum frá 35 kr. á orð og prófarkalesum frá 10 kr. á orð. Við veitum einnig afslátt ef textinn inniheldur endurtekningar.
Gæði
Við vinnum eingöngu með reyndum þýðendum sem þýða yfir á sitt móðurmál. Þannig tryggjum við gæðaþýðingar.
Hröð þjónusta
Við getum oft klárað þýðinguna samdægurs. Það veltur þó á textalengd.
Fáðu finnska þýðingu í fjórum einföldum skrefum
Reiknaðu út þitt verð fyrir þessa þjónustu. Við veitum þó afslátt ef textinn inniheldur endurtekningar.
Reiknaðu út þitt verð fyrir þessa þjónustu. Við veitum þó afslátt ef textinn inniheldur endurtekningar.
Hágæða þýðingar á finnsku
Diction býður upp á þýðingar og prófarkalestur á næstum öllum tungumálum, þar á meðal finnsku. Hjá okkur vinnur hæft starfsfólk með reynslu af prófarkalestri og þýðingum yfir á finnsku. Við leggjum mikla áherslu á að geta boðið upp á hraða þjónustu og að vera meðal þeirra á markaðnum sem veita hagstæðustu verðin.
Finnskar þýðingar
Finnsku þýðendurnir okkar geta þýtt yfir á finnsku úr fjölda ólíkra tungumála og við erum einnig með fjölda þýðenda sem geta þýtt úr finnsku yfir á önnur tungumál. Á Íslandi eru afar fáir sem tala reiprennandi finnsku og er því mikilvægt að hafa þýðingastofu sem býður upp á finnskar þýðingar. Diction getur aðstoðað þig með hvers lags þýðingaverkefni sem er, úr og yfir á finnsku.
Þýðendur með móðurmálskunnáttu
Það er lykilatriði hjá Diction að hafa eingöngu þýðendur með móðurmálskunnáttu við störf. Það tryggir að allur texti, sem þýddur er yfir á finnsku, er þýddur af fagmanneskju sem er fædd og uppalin í Finnlandi. Þar að auki, er það skilyrði hjá okkur að þýðandinn hafi einnig lokið háskólanámi og hafi reynslu af þýðingum. Einungis færustu þýðendurnir eru nógu góðir fyrir Diction. Ef þig vantar að láta þýða mikið magn texta yfir langt tímabil getur Diction tryggt að þú fáir sama þýðandann til að orðafarið sé alltaf það sama.
Finnskur prófarkalestur
Auk þess að bjóða upp á finnskar þýðingar þá bjóðum við að sjálfsögðu einnig upp á prófarkalestur á finnsku. Hvort sem þú ert að gefa út tímaritsgrein, senda inn starfsumsókn eða þarft að skila inn námsverkefni þá er mikilvægt að tungumálið sé rétt. Finnsku þýðendurnir okkar fara ítarlega yfir stafsetningu, málfræði, greinarmerki og setningargerð. Eftir það er gerð leiðrétting með t.d. ”track changes” og þú hefur þá möguleika til að fara yfir og taka afstöðu til breytinganna. Við getum einnig farið yfir textann á annan hátt eða lagt sérstaka áherslu á aðra hluti áður en vinnan hefst.
Fljót afgreiðsla
Hjá Diction getum við tryggt að viðskiptavinir okkar fái hraða þjónustu, vandaðan og villulausan texta. Ef þú ert með finnskan texta, sem þarf að þýða eða prófarkalesa sem fyrst, hafðu þá samband við okkur og við förum í málið. Sveigjanleiki er nefnilega einn af okkar styrkleikum og við getum því alltaf uppfyllt þarfir viðskiptavina okkar. Þar að auki leysum við allar tegundir verkefna, óháð því hvaða texta þú ert með.
Finnskt tungumál
Finnska er meðal þeirra tungumála sem aðskilja sig allra mest frá öðrum skandinavískum tungumálum. Það getur því oft verið þörf á því að fá faglega aðstoð þegar maður ætlar að vinna á finnska markaðnum. Þegar á heildina er litið eru Finnar góðir í ensku, en það leikur enginn vafi á því að ef þú ætlar að koma boðskapnum til skila á réttan hátt og til sem flestra, er nauðsynlegt að þýða hann yfir á finnsku. Óháð því hvaða atvinnugrein þú velur, t.d. fjarskipta-, framleiðslu- eða rafeindaiðnað, þá mælum við með því að fá aðstoð þýðingastofu. Með því ertu undirbúinn fyrir þær tungumála- og menningarlegu áskoranir sem þú stendur frammi fyrir.
Við bjóðum upp á bæði þýðingar og prófarkalestur á finnskum texta. Þú sérð verð og frekari upplýsingar efst á síðunni.
Teymið okkar
Við erum til þjónustu reiðubúin í síma 644 0800 eða á netfanginu [email protected]. Opið virka daga frá 08:00 til 17:00.