Diction
Hringdu í 644 0800
Opið til kl. 17.00
Byggingaiðnaðurinn

Þýðingastofa fyrir einstaklinga og fyrirtæki í byggingaiðnaðinum

Þýðingar innan byggingaiðnaðarins

Í byggingageiranum eru gerðar miklar kröfur um skýrleika þegar um er að ræða tæknilegar ráðstafanir og öryggi. Þýðendur okkar hafa margra ára reynslu af því að þýða texta fyrir byggingageirann og þegar þú velur Diction getur þú verið viss um að þú færð vandaða texta sem standa undir kröfum.

Við notum nýjustu tækni við þýðingar

Þýðendur hjá Diction nota nýjustu hugbúnaðartækni við þýðingar og eru því vel í stakk búnir til að vinna nákvæma og skýra texta. Tæknin tryggir að það séu notuð rétt hugtök í gegnum allan textann sem minnkar líkur á misskilningi og tvíræðni í textanum. Vel skrifaðir textar sannfæra viðskiptavinina um að þeir eigi að velja þig sem þjónustuaðila.

Fáðu auka yfirlestur yfir þýðinguna þína

Þegar þú pantar þýðingu hjá Diction getur þú valið um auka yfirlestur, sem unninn er af öðrum prófarkalesara en þýðandanum. Allir okkar prófarkalesarar hafa margra ára reynslu og sumir eru sérfræðingar innan byggingageirans. Þeir tryggja að bæði málfar og hugtakanotkun sé rétt og að samræmi sé í gegnum allan textann, hvort sem um er að ræða texta fyrir nýbyggingar, öryggisatriði á byggingarstað eða útboðsgögn. Auka yfirlestur er sú þjónusta sem tryggir að lokatextinn uppfylli bæði þínar kröfur og kröfur viðskiptavina þinna. Ef þú þarft texta með skýrum boðskap, en ert í vafa um hvort þú þurfir auka yfirlestur, þá er þér alltaf velkomið að hafa samband og við förum yfir stöðuna saman og finnum réttu lausnina.

Við þýðum meðal annars eftirfarandi texta úr byggingageiranum: útboðsgögn, tæknileg gögn, texta sem varða öryggi á vinnustað, auglýsingar og markaðssetningu.

Borgaðu með greiðslukorti

Einstaklingar geta greitt rafrænt hjá okkur.
visa mastercard bank_transfer
Fáðu tilboð í þýðingar

Viðskiptavinir okkar

Bygging
Diction Ísland ehf.
Stórhöfði 21
110 Reykjavík
Ísland
644 0800
Kennitala: 560123-1670
Vsk. Nr.: 147862
Fylgdu okkur á Facebook - Nýjustu fréttir og uppfærslurFylgdu okkur á Instagram - Sjáðu myndirnar okkar, sögur og uppfærslurHeimsæktu okkur á LinkedIn - Fagleg tengsl
visamastercardbank_transfer