Diction
Hringdu í 644 0800
Lokað um helgar
Læknisfræðilegar þýðingar

Læknisfræðilegar þýðingar frá sérfræðingum í faginu

Þýðingar á læknisfræðilegum texta krefjast ítarlegrar þekkingar á faginu, þar sem það er mikið um sértæka hugtakanotkun og nákvæmar staðreyndir. Hjá Diction erum við meðvituð um það og þess vegna höfum við á skrá hjá okkur þýðendur sem hafa mikla reynslu af því að þýða læknisfræðilega texta. Þú getur því verið viss um að fá þýðingar sem er villulausar og vel skrifaðar.

Nútímatækni tryggir gæði

Þýðendur okkar vinna með nýjustu tækni þýðinga í sinni vinnu. Það tryggir að notuð séu rétt hugtök í gegnum allan textann. Í fagi eins og læknisfræði er þetta trygging fyrir því að þú fáir gæðatexta eins og þú getur átt von á að fá frá virtri þýðingastofu.

Prófarkalestur sem auka þjónusta

Til að tryggja bestu mögulegu gæði erum við með á skrá hjá okkur bæði þýðendur og prófarkalesara með mikla þekkingu innan læknisfræðinnar. Þegar þú pantar þýðingu getur þú valið að fá auka prófarkalestur frá öðrum en þýðandanum sjálfum. Það tryggir að öll smáatriði og hugtök séu rétt. Ef þig vantar að láta þýða læknisfræðilega texta, hvort sem það eru lyfjatextar, læknisfræðilegar greinar, læknabréf, sjúkraskrár eða eitthvað annað, þá getur Diction aðstoðað þig. Þýðendur og prófarkalesarar okkar tryggja að textinn verður í bestu mögulegu gæðum. Hafðu samband í dag og við förum yfir það saman hvort þú þurfir auka prófarkalestur.

Trúnaður

Við þýðum m.a. eftirfarandi tegundir af læknisfræðilegum texta: sjúkraskrár, rannsóknarskýrslur, handbækur fyrir læknisfræðileg tæki, upplýsingar varðandi sjúklinga og margt fleira. Mikið af þeim texta sem við vinnum með hefur ekki verið birtur opinberlega eða notaður áður. Það er því mikilvægt fyrir viðskiptavini okkar að það ríki trúnaður um innihald textans. Við höfum gert allar nauðsynlegar öryggisráðstafanir til að geta viðhaldið trúnaði og gildir þá einu hvort það eru þýðingar eða prófarkalestur.

Borgaðu með greiðslukorti

Einstaklingar geta greitt rafrænt hjá okkur.
visa mastercard bank_transfer
Fáðu tilboð í þýðingar

Viðskiptavinir okkar

Diction Ísland ehf.
Kalkofnsvegur 2, 3. hæð
Hafnartorg, 101 Reykjavík
Ísland
644 0800
Kennitala: 560123-1670
Vsk. Nr.: 147862
visa mastercard bank_transfer