Diction
Hringdu í 644 0800
Opið til kl. 17.00
Fata- og textíliðnaðurinn

Þýðingar innan fata- og textíliðnaðarins

Þýðingar á textum innan fata- og textílgeirans þurfa að innihalda rétt hugtök og það er mikilvægt að smáatriðin séu í lagi. Það er mikil samkeppni innan geirans, en þýðendur okkar hafa margra ára reynslu af þessum gríðarstóra geira. Þú getur því verið viss um að fá texta sem eru vel skrifaðir, réttir og sannfærandi.

Samfeldni í texta með notkun nýjustu tækni við þýðingar

Með aðstoð nýjustu tækni innan þýðinga, tryggjum við ekki eingöngu að notuð séu rétt hugtök, heldur einnig að samræmi sé í notkuninni gegnum allan textann. Með því er engin hætta á misskilningi, heldur er boðskapur textans skýr og ótvíræður. Einsleitni í textanum gerir hann áhrifameiri.

Prófarkalestur frá öðrum sérfræðingi

Þýðandinn fer að sjálfsögðu yfir þýðinguna áður en hún er send til þín, en ef þú vilt þá getur þú einnig fengið yfirlestur á textanum frá öðrum sérfræðingi innan fata- og textílgeirans. Þú getur valið þessa auka þjónustu þegar þú pantar þýðingu og það tryggir að textinn er í hæstu mögulegu gæðum og að það eru engar villur eða misskilningur í honum. Við höfum á skrá hjá okkur tungumálasérfræðinga sem hafa þekkingu á faginu. Það geta verið textar varðandi framleiðslu, sölu eða aðra hluti innan geirans. Sérfræðingar okkar geta ávallt uppfyllt gæðakröfur þínar og þinna viðskiptavina. Hafðu samband og við förum yfir það hvort þú þurfir auka prófarkalestur.

Við þýðum meðal annars þessar tegundir texta innan fata- og textílgeirans: vörulýsingar, útboðstexta, efni fyrir markaðssetningu, vörulista og tæknileg gögn.

Borgaðu með greiðslukorti

Einstaklingar geta greitt rafrænt hjá okkur.
visa mastercard bank_transfer
Fáðu tilboð í þýðingar

Viðskiptavinir okkar

Diction Ísland ehf.
Kalkofnsvegur 2, 3. hæð
Hafnartorg, 101 Reykjavík
Ísland
644 0800
Kennitala: 560123-1670
Vsk. Nr.: 147862
visa mastercard bank_transfer